goosies.tk ;*

03.10.2007 00:05:43 / anida

3 oktober

Góðan og blessaðan..

heyrðu það eru myndir á leiðinni inn frá bústaðnum! verður klárt á morgun =)

við vorum semsagt í bústað um helgina og það var algjör snilld.. ógisslega flippað eithvað þúst.. eeehh

mikið um að vera næstu helgar.. um helgina skellir maður sér líklegast á oktober fest og þar næstu eru tónleikar og afmæli =) það verður gaman..

annas er allt gott að frétta af mer.. skólin gengur bara vel fyrir sig og svo var var ég að byrja að takast á við þrekið mikla aftur.. ég og oddny erum byrjaðar hjá önnu siggu í einkaþjálfun.. samt bara einu sinni í viku, vill ekki vera massaköggull.. hina dagana verður bara skokkað endalaust!! eheh

svo erum eg og erna erum að fara í rvk á fimmtud. að versla okkur eh fínt.. náttlega nýbunar að fá útborgað.. og ég var bara hel sátt með það! meira en ég hef verið að fá útborgað í sumar..

er buin að vera að taka til í herberginu minu og gera huggulegt.. allt að koma til.. :D

síðan eru mamma og pabbi að fara til útlanda á fimmtud. svo ég verð ein heima í viku! sem er bara næææs... ;D og þar næstu helgi lika.. heppinn??

en jæja.. ætla að halda áfram með myndirnar.. þetta er svo ógeðslega lengi alltaf að addast inná snapfish! eithver með betri hugmynd af myndasíðu??

haha erna og oddny að kveikja í uppí bústað!
reykskinjarinn og allt fór í gang.. !

» 4 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 18:25:10 / anida

velkomin heim!:*

hæææj! örstutt færsla..

ætlaði bara að segja að það er ótrúlega gaman að fá hana Rakeli vinkonu okkar heim! geggjað og núna á hún eftir að vera ofnotuð.. þanngað til maður fær ógeð ;) nee baagínast..!

ég, eydis, oddny, erna, agla, helena og kady hittumst allar í bakaríinu morgunin sem rakel kom heim og keyptum bakarísmat og eh.. földum okkur svo inní eldhúsi þegar hún var að koma og svo knúsuðum við hana og kreistum.. ohh við erum svo góðar vinkonur.. ;D

ég er núna pottþétt á þvi að ég er að fara út eftir næsta sumar í enskuskóla.. er meira á þvi að fara í enskuskóla í hálft ár, frekar en skiptineman.. ! verð að læra ensku svo ég geti eithvað í háskóla...

verður gaman um helgina.. ætlum að gera eithvað saman við stelpurnar.. gera eh skemmtilegt fyrir hawai Rakel..

5 vikur búnar að skólanum og 9 vikur eftir! vááá.. fljótt að líða!..

hlakka til að hitta ykkur oddny og erna uppí sjoppu í kvöld.. ;);) og hlakka til að leika við þig í kvöld rakel :* oo ég er svo væmin!..

hef fullt meira að segja sem ég nenni ekki að segja útaf það er svo ómerkilegt =) svo ég er farin upp að borða domino's pizzu ( like always)

bææææææ!


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 13:11:11 / anida

það er líka til sjálfselskt fólk

jæja.. sit herna heima að deyja úr leiðindum.. engin skemmtilegur til að hanga með.. allir svo leiðilegir ;)

þannig er mál með vexti að ég er "veik" var svo illt í maganum í morgun þegar ég vaknaði að ég fór ekki í skólann, lá við að það skoppuðu niður tár á kinninna mina :D híhí

eithvað farið að efast um þessa bústaða ferð.. næstu helgi verðum við stelpurnar að mæta í útivist á laugardegi.. annas erum við fallnar.. þar næstu helgi sem við eigum panntaðan bústaðinn er ball í fva og við viljum helst ekki missa af því.. þar, þar næstu helgi er "oktober" fest.. viljum ekki missa af því og þar þar þar næstu helgi fara oddny og Erna til útlanda :( kannski við þurfum bara að sleppa þessu balli til þess að komast.. held það sé líka bara alltílagi stelpur? eða hvað?

óþægilegt að eiga slatta af pening inná kortinu sínu og vita ekkert hvða á að gera við hann.. maður er alltaf að vesla sér einhver föt og svo ef maður fer aftur að versla þá klárast peningurinn.. en í hvað annað á ég að eyða peninginum? kannski síma eydis? ;)

Rakel er að koma heim á miðvikudagsmorgun!! ég trúi því lyggur við ekki.. það verður sko gaman! að fá Rakel sína aftur heim eftir 3 mánuði :* skrítið..

jæja.. ætla að hringja í stelpurnar og spurja hvað á að læra fyrir dagin á morgun svo ég hafi eithvað að gera heima í dag.. svo á ég líka eftir að klára að mála herbergið mitt sem ég byrjaði á í gær.. geggjað flottur litur =) og eitt annað til skemmtunar.. þá get ég horft á grey's.. svo mer leiðist kannski ekkert svo mikið í dag.. fint að hafa einn dag til þess að slappa af.. maður er ekki alltaf að missa af öllu eins og maður heldur.. það segir mamma :) hehe

Anita kveður í kútinn:*


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 19:47:12 / Erna

Yeah

Lalala.. væri maður til í að vera svona eðaa ?

 

 Haha rakst bara eitthverstaðar á þetta :D wraaaar !

 

- e r n a :] 


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.09.2007 20:52:05 / anida

ekkert grín að labba upp akrafjall

sæl ;)

ætla að hafa þetta stutta færlsu.. ég var að koma úr sturtu eftir mikla akrafjallsgöngu.. úff þetta tók á.. fórum uppá akrafjall við sem skráðum okkur í útivist í skólanum.. en þetta er alveg fínt því erna, oddny og alex eru jú með mer :D förum næstu 4 laugardaga í eithverjar fjalla göngur =l

er bara að fara núna uppí hvítahús með oddny.. eithverjir að fara að taka videó þarna.. held að þetta sé alveg orðin fínn staður til að vera í á kvöldin.. heyrist það allavega á mörgum =)

á morgun ætlum við stelpurnar og eitthver að vera heima hjá ernu og fara í pottinn og svona.. fyrstað það er nú frí í skólanum á föstudaginn.. kannski samt bara.. ef potturinn er í gúddí.. vona það

föstudaginn ætlum við stelpurnar svo að kíkja á chris lake.. ha Róbert og Jón!! við erum að fara á chris lake!! finnst ykkur ekki geggjað?? eaheah..

en já.. minni á að ég var að setja inn myndir frá föstudagskvöldinu síðasta.. náði því miður ekki að taka neinar myndir af ballinu en það eru eithverjar frá kvöldinu ;)

wessagú.. ætla að klára gera mig til og koma mer út..

heyrumst sem fyrst! ;*


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 14:31:20 / Oddny

Hann er alveg klikkaður í pakka :D

 

Í dag er hátíðsdagur fyrir flest alla landsmenn

Hann Valgeir Valdi Valgeirsson

öðru nafni

valdsdog, e-pillu valdz, klósett valdz og fleira

er  19 ára í dag :D

Valdi og Erna klikkuð í kókópuffs um verslunarmannahelgina:D

Til hamingju með daginn Valdi:D

:*

Ef þið viljið óska honum til hamingju þá er hann að rúnta á pallbíl með sólgleraugu og sólheimaglott um bæinn:D:D

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 14:16:39 / anida

Bonjour! ;)

langt síðan síðast ha.. búnar að vera frekar slappar í þessum bloggbransa síðustu 2 mánuði sumarsins.. tökum þetta upp aftur núna þegar skólinn blessaði er byrjaður
búnar að vera núna í viku í skólanum og þetta lítur bara ágætlega út..

sunnudaginn fór ég á leikinn með stelpunum og ég var svo aldeilis ekki sátt! var frekar pirruð inní mer sem kemur á óvart hjá mer útaf fótboltaleik? þegar við komum heim fór ég bara að krúsa með ernu, oddny gumma og malló.. á mánudaginn fór ég að vinna í olís eftir skóla, í gær reyndi ég að læra.. tókst ekki, fór bara að horfa á grey's og núna er ég bara að fara að vinna í olís kl. hálf 4..

fæ smá kítl í magan ef ég hugsa til föstudagsins.. langt síðan ég hef farið á ball.. hlakka ekkert smá mikið til, bæði til ballsins og busavíxlunar.. við erum ekki lengur busar :D

en með ballið,, þá held ég að það leggist vel í alla og ég býst við að það verði góð mæting á þetta ball.. =)

á morgun ætla ég og eydis að skella okkur í bæinn... reyna að finna eh fyrir þetta ball.. ef ég finn ekkert verð eg víst bara að leita af eithverju inní fataskáp hjá mer.. finn á mer að ég á ekki eftir að finna neitt í bænum.. ætla svo í ljós líka.. en greyið eydís mín má ekki fara ;* hehe

síðan núna í sept ætlum við stelpurnar að fara í bústað yfir eina helgi.. og ætlum að hafa það ógó gaman! verður stuð ;)

hef þetta gott í bili, ætla að lesa smá í ísl. áður en ég fer að vinna.

ANÍTA:*

ein spurning.. hverjum hlakkar til jólanna??


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 15:46:35 / Oddny

Verlsunarmannahelgi

HÆ :*

Þá er kanski bara kominn tími á verslunamannahelgarfærslu ! Við tókum því bara rólega og skelltum okkur í útilegu Húsafell ! Ég og Sölvi fórum á fimmtudeginum og komum þegar allt var orðið dimmt og hevy hvasst og það tók okkur 2 tíma að tjalda ! Spiluðum kana undir morgun við Himma og Eyrúnu sem voru í bústað:D og ég sökkaði !

Á föstudeginum komu svo Erna og Valdi fyrst og ég og sölvi þorðum varla að stíga fæti af túninu til að missa ekki plássið een það blessaðist:D Erna og Valdi lögðu að stað á sama tíma og valdi kom held ég klukkutíma á undan,,8] (reyndar lika afþví að erna kom við í bústaðnum hjá pabba sínum, bara gaman að segja þetta:* :D)

Seinna um kvöldið komu svo unnar og Aníta og AronDan, Aron dó samt þetta kvöldið um 12 leitið , Aníta og unnar fundu hann og fóru með hann í foreldratjald:D. Við skemmtum okkur samt vel þetta kvöldið.

Á laugardeginum, skorti stóla, hitara og mat þannig við renndum í Borgarnes og keyptum það sem þurfti , og Erna uppgötvaði einhvern svaka góðann mat í grillinu í olís ! ;)

ÞAð var svo Brenna um kvöldið, held að allir hafi skemmt sér mjög vel, ég fór snemma að sofa það kvöldið, veit samt að Malló , Ásdís og Birkirörn hafi komið og Birkir komið með gítarinn og haldið uppi stemningu, leiðinlegt að missa af því !! ;)

Sunnudagurinn var bara tjill, var horft á leikinn og  bara eitthva svona dúllað okkur !

Allann tíman var Erna uppistandið, sjáið það kannski á myndonum en sunnudagurinn fór mestmegnið í það að Unnar og Erna slóust og heltu bjór og vatni yfir hvort annað og við hlóum allann daginn, var lika gert mikið grín :D

Á sunnudagskvöldinu var brenna, en bara hjá mömmu of þeim öllum sem voru þeim megin, renndum þangað eftir að við vorum búin að sitja aðeins og hlusta á prumpusögur og svona, þá var sungið og trallað fram á nótt, endaði svo með því að vörðurinn kom og sagði okkur að drepa í ! þannig að þá fóru allir bara til okkar og það var haldið áfram að syngja:D Valdi átti líka gott kvöld, var ooofurölvi, átti góð lög um sjálfann sig og tók adda inn á milli ;)

Frétti svo á mánudeginum að Erna hafi komið við í Borgarnesi á leiðini heim til að fá sér dýrindismatinn í grillinu í olís :*:D hahah..

ÞEtta var ótrúlega gaman og ég skemmti mér ógeðslega vel:D

Ef þið hafið einhverju við að bæta ! setjið það inn! ég man ekki öll gullkornin:*

Koma myndir bara sem fyrst,, ég tók 200 og einhvað myndir og anita örugglega lika ;)

:*


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.07.2007 02:55:30 / anida

styttist í endalok sumarsins

sælar :)

jæja var rétt í þessu að skella inn myndum frá síðustu helgi..

ég fór semsagt í útileigu með unnari, steinari, fylki, jón inga, lenu, alexöndru og bryndísi og það var mj0g gaman.. fórum á tjaldsvæði sem hét Faxi or sum, rétt hjá laugarvatni og þar í kring. en semsagt, við komum í mígandi rigningu og tjölduðum þannig upp og þannig var það allt kvöldið.. en dagin eftir var bara þvílík blíða og við láum bara í sólbaði og fórum í sund og svona.. Steinar og Lena voru lítið sem ekkert með okkur allan dagin því þau fóru á hestbak og í eithvað náttúrusund klst frá tjaldsvæðinu or sum.. svo þau komu ekki fyrr en um kvöldið :)

annas þá finnst mer hevy gaman að fara í útilegu, var buin að gleyma hvað það væri mikið stuð ef það fer góður hópur saman og ég stefni á að gera það um versló :) mikið skemmtilegra að fara í útilegu heldur enn að fara niður í bæ á akureyri or sum, þurfa að passa uppá lúkkið og allir blindfullir og slást og svolleis.. sammála??

það styttist nú bara í endalok sumarsins, sem er ágæt.. farin að hlakka til að byrja í skólanum..

een ég var að fá kisa.. eithvað sem ég hélt ég mundi aldrei fá.. erum ekki dýra sjúkar.. ég og mamma mín.. en alltíeinu leyfði mamma krökkunum að fá kött.. trítilóðan lítin kettling..

ég er buin að vera að vinna ekkert smá mikið uppá síðkastið.. svo það er voða litið að frétta af mer.. get allavega ekki beðið eftir versló.. eins gott að það verði gaman !

en vildi bara aðeins láta heyra í mer.. minni enn og aftur á myndirnar.. núna eru komnar helling af nýjum myndum.. endilega njótið

kv. Anita ;*


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 15:42:14 / Oddny

Jææææja:D

Hola... 

Jaherna hvað þetta tók ógeðslega langann tíma:D En myndirnar fra staffapartyinu eru komnar;)

Stefnan er útilega um verlsunarmannahelgina, hvað ætlar fólk að geeera:D?

MYNDIR !

SKoða takk :*


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 17:57:55 / Oddny

Myndir og blogg !

:D !

Nenni ekki að í næstu færslu standi "Ég Aníta, er eina sem blogga" tíhí:D:*

Síðustu helgi var staffaparty hjá okkur olís stelpum, og Róbert. Sem var bara fínt, nema bollan var vond. Við grilluðum og átum yfir okkur, hehe síðan vorum við bara að spjalla og svona, ég fór heim eitthvað um 3 leitið minnir mig, og veit ekki hvenær stelpurnar fóru heim, en þetta var ágætt bara:D Laugardagurinn fór bara í að fara á leikinn og aftur heim, hanga í olís og næturvakt ! og sunnudagurinn i svefn til 6 ! gríðarlega skemmtilegt...

Aníta tók myndir og þær koma inn bara vonandi í kvöld, og ég á líka eftir að setja inn myndirnar mínar frá írskum dögum, ballinu og svona:D yndislegar myndir, myndband af Guðrúnu Selmu, ógeðslega fyndið;) heheh..

Hvað ætlar fólk að gera um verslunarmannahelgina, ? Nenniði að kommenta um það;D, þið sem redduðuð ekki fríi i vinnunni heheheheh!!

 Annars .. myndirnar koma i kvold ! :D

sjást:*

 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 18:38:43 / anida

greinilega ekki það besta í heimi að brenna..

jæja.. það er náttlega bara beðið eftir að Anita komi heim frá útlöndum og bloggi, það er ekki hægt að vera með blogg á milli.. neei það er ekki hægt, alltaf bara Anita, Anita.. !

een ég kom ekki með eina færslu hérna til þess að væla, ónei.. ég er semsagt ný komin heim frá mallorca og beint á írska daga svo ég ætla aðeins að deila með mer síðustu dögum.

á föstudeginum vorum við komin um4 leytið uppá hótel og ég og eydis skelltum okkur beint í sólbað í smástund, dagarnir fóru flestir í að lyggja í sólbaði og svona róleg heit, fljótlega í byrjun var skýjað 2 daga í röð og svo aftur síðustu 3 og hálfan dagin, frekar fúlt.. een við létum það ekki stoppa okkur ! lágum bara samt.. fórum þrisvar til palma (höfuðborgin á mallorca) tókum rútu bara sem tók klst.. fórum tvisvar að versla þar, einu sinni í mollið og einu sinni á "laugarvegin" þar, vegna þess að H&M var þar.. og síðan einu sinni í vatnsleikjagarðin.. fórum svo út að borða á hverju einasta kvöldi og sátum svo oft útí garði eða fórum á eithverja skemmtistaði þarna, oftast sama.. og svo inni að spila og fl. hafa það kósý..

verslaði mer alveg slatta þarna úti.. bara sátt með það, lét svo teikna svona mynd af mer.. mjög flott mynd, enda af mer ;)

já og eins og flestir vita ábyggilega.. þá er það sem toppaði ferðina síðasti dagurinn minn og eydisar, keyptum okkur matarolíu og sítrónur og blönduðum saman, vegna þess að eydis sagði að hun hafði gert það þegar hun fór til portúgal með elsu og dagný og það hefði virkað,, mökuðum þessu á okkur og fórum niður á strönd til að fá enþá meiri lit útaf saltinu í sjónum, kl. 3-4 leytið sögðu allir okkur að taka þetta af okkur en við hlustuðum ekkert á þau, vissum alveg hvað við vorum að gera, skipti ekki þótt við mundum brenna smá.. hvort eð er síðasti dagurinn en svo þegar við komum inn var eydis orðin skað brennd og ég fann fyrir smá sviða neðst á fótunum, sem betur fer ekki meira.. þá lét eydis mig vita að hun og dagný og þær gerðu þetta aldei útá portúgal, voru bara að tala um þetta! haha.. seinna um kvöldið var brunin hennar eydisar ekkert orðin venjulegur bruni, byrjuð að fá blöðrur og svona og hun lá bara uppá hóteli alveg að deyja.. lá í jógúrt "baði" í 2 klst þanngað til læknirinn kom, þá var hun komin með annars stigs bruna og er buin að vera mjög slæm frá því við komum heim, aðeins að skána nuna, samt öll bólgin og svört og rauð á fótunum, skil samt ekki alveg afhvejru hun er svört.. en þetta er ógeðslegt að sjá fæturnar á henni!

een írksir dagar eru bara bunir að vera fínir, föstudagskvöldið þegar við komum heim kíktum við niður í bæ og uppá tjaldsvæði og svona og á laugardeginum var ég að vinna til tæp hálf 7 og um kvöldið kíktum ég, erna og oddny til eydisar og þeirra allra.. ballið var svo bara hevy skemmtilegt ;) í gær var ég svo bara að vinna í olís til 12..

myndir koma svo frá mallorca og írskum sem fyrst! ;)

bið að heilsa ;)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

náði svo einni mynd þegar það var verið að slökkva í Eydisi ;)

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 00:06:14 / anida

hvað er að ske?!

allamalla obbobbojj...
hvað er að gerast með okkur?! núna ætla ég að reyna að bjarga þessari hálfdauðu síðu og hressa uppá hana:D

já þið getið rétt ýmindað ykkur hvað er mikil spenna hjá mer og mínum þessa dagana!... við erum nebblega bara að fara til spánar eftir rúma viku.. ! hmm, hugsa samt að þið eigið að vera buin að ná þvi.. er kannski buin að nefna það nokkuð oft herna á goosies:$ en ég meina só what.. vill kannski bara deila því með ykkur,, síðan komum við beint heim á írska! það verður sko stuð

er hætt á galító og er kannski að fara að fá aðra vinnu, draumavinnuna mína síðan í 9, 10 bekk!! ef ég verð svo heppin þá er ég að hugsa um að halda mig þar bara all my life!

langar ótrúlega núna að fara að horfa á lost.. er ný byrjuð á annari seríu.. finnst samt geggjað leiðilegt að það segja allir að hun sé svo mikil steypa.. er þá ekkert lengur eins spennt og ég var þegar ég var að horfa á fyrstu seríu..

já svo vil eg líka segja ykkur að ég á rosalega mikið bágt núna undanfarna daga, allt vonlaust hjá greyið mer :l ég er sko með halsæri, frunsu og öll í bólum á tungunni.. langar ykkur í sleik? er með eithvað oðnæmi eða eh.. aumingja Anita..

hver vill vera félaginn minn á morgun? koma með mer til rvk  kl. 6, þarf aðeins að fara að vesenast.. ef þú vilt vera svo vænn að vera vinur minn milli 6 og 9 þá þygg ég það.. svo láttu mig bara vita í símann minn.. lámark samt að vita símanúmerið mitt ;)

jæja.. lost hættir ekki að kalla á mig.. heyri nú í ykkur áður en ég fer á ströndinna.. CIAO!!:*:*

HEY.. muna að ég þygg lög frá ykkur ef þið eigið einhver skemmtileg fyrir mig.. svo ég get hlustað á eithvað skemmtó í sólbaði :D

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 00:01:01 / Erna

eurovision og kosningavaka !

Sæææælar :] !Jæja ég vil nú ekki að síðan hætti skoo.. :o. Svo ég ákvað nú að blogga hérna litla færslu.Ágætt að frétta af mér svo sem... ég er búin í prófunum og ég er nú ekkert alveg viss að mér gekk eitthvað geggjað vel en ég vona að ég næ allavega, eða eins og ég leyfi mér að hafa eftir BjarkaSig að allt yfir 4,5 er aukavinna.. hehe =)  Þannig að sem sagt er ég núna óformlega komin í sumarfrí, en ég er samt ekki komin með neina sumarvinnu nema reyndar subway aðrahverja helgi og eitthver kvöld en það er ekki nóg.. vona að ég finn eitthvað annars neyðist ég í vinnuskólann, eða letigarðana eins og ammadúlla kallar þetta.En jææja í kvöld eru bara allir á djamminu sko ógeðslega gaman bara!  Náttlega eurovision og kosningavaka bæði á sama kvöldinu.  Allir geggjað spenntir yfir kosningarvöku, en ég skil allavega ekki neitt :Þ  Ég var nú ekki nógu sátt með lagið sem vann eurovision, fannst það eitthvað glatað :l  Ég hefði viljað að gæinn sem ég sá í undankeppninni á fimmtudaginn með lagið þarna luuuv power mundi vera.  En já eins og ég segi þá skil ég ekkert í þessu kosningadæmi mér er svona nett sama um þetta dæmi, en ég er samt að fara í eitthvað kosningapartý eða eitthvað, hmm ég er svo steikt =D

Jæææja er bara að passa en pabbi fer að koma heim þannig að ég get farið eitthvað með stelpunum að fylgjast mjög "spennt" eftir úrslitum kosninganna, er samt ekki að segja að mér sé að fara að leiðast eitthvað í kvöld eða að mér leiðist þetta eitthvað hevy mikið.. skil bara þetta allt ekki ;P

(sorry hvað þetta er stutt, en þetta er þó færsla ;D).

Er na kveður að sinni.. -chao :*


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 17:43:32 / anida

i'm crazy

 ARGH!!..

er að verða biluð á þessum "bloggfélögum" ætti ég að reka þær? :D allavega....

þá á ekki eftir að koma færlsa frá mer þanngað til eg verð buin að sjá eithverja færslu frá öðrum en mer ;) heyriði það stelpur.. svona helst vil ég fá frá Ernu Guðrúnu, Soley eða Ernu.... en oddny, mátt taka þetta til þin lika elskan

ég er komin með vinnu á Galitó svona með Nínu, ekkert nema gott.. vantar svo mikinn pening nebblega..

prófin hálfnuð hja mer.. á morgun eru bara 2 próf létt eftir

en vona að þessar bloggfærslur minar séu það mikið virði að þið reynduð að lesa þetta á kínversku, eða fóruð í word og breyttu þar!! verð glöð með þá sem gerðu það!.. varð bara að hafa hana á kínversku því ég er svo reið útí stelpurnar

sjáumst kannski í næsta lífi?


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Dagsetning
10. febrúar 2012